Fotbolti.net
16.12.20 - 17:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sam Allardyce nýr þjálfari West Brom (Staðfest)

Hann er mættur aftur.

Hann er mættur aftur.

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur gengið frá ráðningu á Sam Allardyce sem nýjum þjálfara liðsins.

Slaven Bilic var rekinn úr starfi í morgun, degi eftir að liðið gerði jafntefli við Manchester City á útivelli. Stóri Sam var nánast eini maðurinn sem var nefndur í tengslum við starfið og núna hefur ráðningin á honum verið staðfest.
West Brom er í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir 13 leiki. Liðið kom upp úr Championship-deildinni fyrir þessa leiktíð.

Hinn 66 ára gamli Sam hefur aldrei fallið úr ensku úrvalsdeildinni á ferli sínum en hann hefur áður stýrt Bolton, Newcastle, Blackburn, West Ham, Sunderland, Crystal Palace og Everton.

Sam hefur verið í rúmlega tveggja ára fríi frá fótbolta en hann hætti hjá Everton sumarið 2018.

Hann skrifar undir 18 mánaða samning við West Brom og verður Sammy Lee aðstoðarmaður hans. Allardyce mun stýra WBA í fyrsta sinn á sunnudag gegn Aston Villa í nágrannaslag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.