Fotbolti.net
17.02.15 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Nick Mcnamara í Fjarðabyggð (Staðfest)

Nick Mcnamara í Fjarðabyggð (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fjarðabyggð hefur samið við enska miðjumanninn Nicky Mcnamara.
Nicky er 25 ára gamall en hann lék síðast með Port Melbourne Sharks SC í næstefstu deild í Ástralíu.

Nicky var áður í unglingaliði Hull á Englandi auk þess sem hann var um tíma hjá Rushden & Diamonds.

Fjarðabyggð sigraði 2. deildina í fyrra en liðið hefur verið að safna liðsstyrk fyrir keppni í 1. deildinni í sumar.

Elvar Ingi Vignisson og Alexander Aron Davorsson komu frá Aftureldingu fyrr í vetur, Hector Pena kom frá Leikni Fáskrúðsfirði og Elmar Bragi Einarsson kom frá HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.