Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. febrúar 2021 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Man City bætti met - Tíu sigrar í röð á nýju ári
Mynd: Getty Images
Manchester City bætti enn eitt metið með sigri sínum gegn Everton í kvöld.

Lærisveinar Pep Guardiola virðast vera á góðri leið með að hampa Englandsmeistaratitlinum enda voru þeir að vinna sinn tíunda deildarleik í röð á nýju ári.

Það hefur aldrei gerst áður að úrvalsdeildarliði takist að sigra fyrstu tíu deildarleiki sína á nýju ári, en í heildina er City búið að vinna 17 leiki í röð í öllum keppnum og aðeins búið að fá 4 mörk á sig.

Þetta er sérstaklega merkilegt afrek í ljósi þess hversu þétt leikjaprógramið er og hversu margir leikmenn hafa verið fjarverandi vegna meiðsla eða veikinda.


Athugasemdir
banner
banner