Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir leikina þrjá sem hefjast klukkan 20:00 í Meistaradeildinni. Barist er um sæti í 16-liða úrslitum en seinni leikirnir verður 25. febrúar.
Áhugaverðasti leikur kvöldsins er í Portúgal þar sem Benfica tekur á móti Real Madrid. Þegar þessi lið mættust fyrir stuttu var dramatíkin gríðarleg þar sem Anatoliy Trubin, markvörður Benfica, skoraði í blálokin og tryggði Benfica sæti á þessu stigi keppninnar.
Áhugaverðasti leikur kvöldsins er í Portúgal þar sem Benfica tekur á móti Real Madrid. Þegar þessi lið mættust fyrir stuttu var dramatíkin gríðarleg þar sem Anatoliy Trubin, markvörður Benfica, skoraði í blálokin og tryggði Benfica sæti á þessu stigi keppninnar.
Kylian Mbappe var hvíldur í síðasta leik en hann snýr aftur í kvöld. Jude Bellingham er enn á meiðslalistanum en Trent Alexander-Arnold byrjar.
Andreas Schjelderup er leikmaður sem áhorfendur ættu að fylgjast með í leiknum í kvöld, sprækur Norðmaður þar á ferðinni.
Byrjunarlið Benfica: Trubin; Dedic, Otamendi, Tomás Araújo, Dahl; Rafa Silva, Barreiro; Prestianni, Sudakov, Schjelderup; Pavlidis.
Byrjunarlið Real Madrid: Courtois; Alexander-Arnold, Rüdiger, Huijsen, Carreras; Fede Valverde, Arda Güler, Tchouaméni, Camavinga; Mbappé, Vinicius.
Dortmund mætir þá Atalanta og Mónakó mætir PSG en byrjunarliðin fyrir þá leiki eru hér að neðan.
Byrjunarlið Dortmund: Kobel; Ryerson, Anton, Bensebaini, Reggiani; Ryerson, Nmecha, Bellingham, Svensson; Beier, Brandt; Guirassy.
Byrjunarlið Atalanta: Carnesecchi; Kolasinac, Djimsiti, Koussounou; Zappacosta, De Roon, Ederson, Bernasconi; Pasalic, Zalewski; Scamacca.
Byrjunarlið Mónakó: Köhn; Vanderson, Faes, Zakaria, Caio Henrique; Camara, Teze; Adingra, Golovin, Akliouche; Balogun.
Byrjunarlið PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Nuno Mendes; Zaïre-Emery, Vitinha, João Neves; Kvaratskhelia, Dembélé, Barcola.
Athugasemdir

