Fotbolti.net
17.02.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Dómarinn tilkynnir lögreglunni um líflátshótanir

Federico La Penna hafði í nægu að snúast.

Federico La Penna hafði í nægu að snúast.

Canon

Mynd: EPA

Ítalski dómarinn Federico La Penna hefur tilkynnt lögreglunni um líflátshótanir sem hann fékk eftir að hafa dæmt leik Inter og Juventus um síðustu helgi.

Inter vann leikinn 3-2 en Pierre Kalulu, leikmaður Juventus, fékk ranglega rautt spjald á 42. mínútu. Þar sem um seinna gula spjald hans var að ræða voru VAR dómararnir með bundnar hendur.
Chiellini og Comolli fá bann eftir uppþot helgarinnar
TENGT EFNI

Chiellini og Comolli fá bann eftir uppþot helgarinnar

„Við hörmum þetta atvik. Við hörmum að (Federico) La Penna hafi tekið ranga ákvörðun og að bundið var fyrir hendur VAR-teymisins til að skerast í leikinn. La Penna er miður sín útaf þessu atviki og við stöndum þétt við bakið á honum," sagði Gianluca Rocchi, yfirmaður dómaramála, sem viðurkenndi mistökin.

La Penna fékk svo líflátshótanir frá stuðningsmönnum Juventus gegnum internetið, hótunum var bæði beint að honum og fjölskyldu hans. Hann hefur tikynnt hótanirnar til lögreglu.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.