Fotbolti.net
17.02.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

„Ég er 100% á því að Salah fari frá Liverpool í sumar“

Salah er með samning til 2027.

Salah er með samning til 2027.

Canon

Mynd: EPA

Tim Sherwood, sérfræðingur Sky Sports, segist ekki í nokkrum vafa um það að Mohamed Salah kveðji Liverpool í sumar.

Umræða um framtíð 33 ára Egyptans hefur verið í fullum gangi síðan hann skaut á stjóra sinn, Arne Slot, í eldfimu viðtali fyrir áramót.

Ólgan minnkaði eftir að Salah kom til baka úr Afríkukeppninni og hann skoraði og lagði upp í bikarsigrinum gegn Brighton um liðna helgi.
Van Dijk: Auðvitað vil ég að hann verði áfram
TENGT EFNI

Van Dijk: Auðvitað vil ég að hann verði áfram

„Hann er að mínu mati einn besti erlendi leikmaðurinn sem við höfum séð í ensku úrvalsdeildinni. Það er enginn vafi á því að hann er ekki að spila eins vel og hann gerði á síðasta tímabili og tölfræðin styður það. Það hefur verið vandamál milli hans og stjórans," segir Sherwood.

„Ég er 100% viss um að Salah fari í sumar, hann sé að syngja sinn svanasöng hjá félaginu. Hann mun fá hlýjar kveðjur frá stuðningsmönnum enda þjónað félaginu stórkostlega."

Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.