Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Eiginlega fáránlegt að fá símtalið frá Arnari"
Draumurinn rætist 35 ára
'Mig hefur dreymt þetta og mér hefur fundist ég hafa átt að vera í þessum hóp áður'
'Mig hefur dreymt þetta og mér hefur fundist ég hafa átt að vera í þessum hóp áður'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég hélt fyrir nokkrum vikum að þetta myndi ekki gerast'
'Ég hélt fyrir nokkrum vikum að þetta myndi ekki gerast'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þá varð tilfinningin held ég ennþá betri en ef ég hefði verið tilkynntur í upprunalega hópinn'
'Þá varð tilfinningin held ég ennþá betri en ef ég hefði verið tilkynntur í upprunalega hópinn'
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fékk símtalið frá Arnari síðasta mánudag.
Fékk símtalið frá Arnari síðasta mánudag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson var í síðustu viku valinn í íslenska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Hann fékk símtalið frá Arnari Gunnlaugssyni síðasta mánudag eftir að Aron Sigurðarson dró sig út úr landsliðshópnum.

Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Mar, Grímsa, um landsliðskallið. Framundan er vináttulandsleikur í Mexíkó.

Ekkert eðlilega glaður
„Það erfitt að lýsa því, það var eiginlega fáránlegt (að fá símtalið). Mig hefur dreymt þetta og mér hefur fundist ég hafa átt að vera í þessum hóp áður. Ég hélt fyrir nokkrum vikum að þetta myndi ekki gerast. Símtalið kom mér á óvart og ég var ekkert eðlilega glaður þegar Arnar hringdi í mig," segir Grímsi.

„Ég var búinn að heyra af því að ég væri í stærri hópnum stuttu áður. Þá fór ég að gera mér vonir. Svo hugsaði ég þetta og var á endanum kominn á þá hugsun að ég yrði í hópnum. Ég bara hafði það mikla trú á sjálfum mér. En svo kom höggið þegar hópurinn var tilkynntur. Þá fékk ég smá högg í magann, var búinn að hugsa að þetta yrði svo gaman, en svo leit þetta út fyrir að verða ekki að veruleika. Svo hringir Arnar í mig stuttu seinna og segir að ég sé með af því að Aron hafi dregið út. Þá varð tilfinningin held ég ennþá betri en ef ég hefði verið tilkynntur í upprunalega hópinn. Ég get bara ekki beðið eftir þessu verkefni, það verður geðveikt að fara til Mexíkó."

Leikurinn er á undirbúningstímabili, er einhver höfuðverkur að komast í þessa ferð, eða ýtir maður öllu frá til þess að komast í þetta?

„Fyrir mér er það þannig að ég ýti öllu til að komast í þetta. Þetta er sjaldgæft fyrir mig að komast í svona verkefni. Hvað KA varðar, þá hittir þessi leikur inn í æfingaferð. Við fljúgum frá Mexíkó til Marbella og klárum æfingaferðina með liðinu. KA fannst alveg sjálfsagt að ég og Hansi myndum fara. Það kom held ég ekki til greina að standa í vegi fyrir okkur eða eitthvað svoleiðis."

Hallgrímur Mar og Hans Viktor Guðmundsson verða fulltrúar KA í landsliðshópnum.

Var kannski álitinn of gamall 2022
Þú nefnir að þér hafi áður fundist þú eiga að vera í álíka landsliðshópi. Hvenær var það?

„Mér fannst það 2022 held ég, þá voru einhverjir hjá KA inni í myndinni, en þá var kannski litið á mig sem of gamlan mann - ég veit það ekki. Svo oft finnst mér ég hafa gert tilkall, en svo er misjafnt hvaða menn komast í leikina fá Norðurlöndunum og svoleiðis. Mér finnst ég hafa sýnt það held ég öll árin sem ég hef spilað í deildinni að ég sé einn af betri mönnum í deildinni. Ég skila allavega alltaf tölum sem skila mér á topp 3-4 yfir mörk og stoðsendingar í deildinni."

Hallgrímur Mar er leikjahæsti, markahæsti og stoðsendingahæsti leikmaður í sögu KA. Hann skoraði 13 mörk í deildinni á síðasta tímabili og lagði upp fimm. Þá skoraði hann í báðum Evrópuleikjum KA á síðasta tímabili.

Skil alveg að menn hafi sínar skoðanir
Hvað finnst þér um umræðuna um hópinn?

„Hún truflar mig ekki, skiptir mig engu máli. Ég skil alveg að menn hafa sínar skoðanir og allt það, þjálfarinn vill gera þetta eins og hann vill og þannig er það. Ég hlakka til að vera partur af þessum hóp, þó að ykkur (gagnrýnendur) finnist við vera gamlir. Ég get bara ekki beðið eftir því að hitta hópinn," segir Grímsi sem er fæddur árið 1990 og er með elstu mönnum í hópnum.

Alltaf gaman að máta sig við betri leikmenn
Hvernig heldur þú að það verði að spila á móti Mexíkó?

„Mexíkó er að undirbúa sig fyrir stórmót þannig ég býst við mjög sterku liði. Ég veit lítið um liðið en ég veit að þetta er mjög gott lið. Þeir eru fastir fyrir og agressífir. Það verður mjög gaman að takast á við þetta - alltaf gaman að máta sig við gaura sem eru nokkrum stigum ofar en maður sjálfur," segir Grímsi.
Athugasemdir
banner
banner
banner