Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 19:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin: Juventus í skítamálum
Galatasaray fagnar marki.
Galatasaray fagnar marki.
Mynd: EPA
Juan Cabal fékk að líta rauða spjaldið.
Juan Cabal fékk að líta rauða spjaldið.
Mynd: EPA
Galatasaray 5 - 2 Juventus
1-0 Gabriel Sara ('15 )
1-1 Teun Koopmeiners ('16 )
1-2 Teun Koopmeiners ('32 )
2-2 Noa Lang ('49 )
3-2 Davinson Sanchez ('60 )
4-2 Noa Lang ('75 )
5-2 Sacha Boey ('86 )
Rautt spjald: Juan Cabal, Juventus ('67)

Það áttu sér stað mjög svo áhugaverð úrslit í fyrsta leik dagsins í Meistaradeildinni; Galatasaray pakkaði saman Juventus.

Gabriel Sara kom Galatasaray yfir eftir stundarfjórðung en þegar flautað var til hálfleiks, þá var staðan orðin 1-2 gestunum í vil. Hollendingurinn Teun Koopmeiners gerði bæði mörkin.

Annar Hollendingur, Noa Lang, jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn í byrjun seinni hálfleiks áður en Davinson Sanchez kom þeim yfir.

Stuttu eftir það mark þá dró til tíðinda því varamaðurinn Juan Cabal breyttist í algjöran skúrk fyrir Juventus. Hann var algjör klaufi og fékk sitt annað gula spjald bara 21 mínútu eftir að hann kom inn á.

Juventus brást ekki vel við rauða spjaldinu og bætti Galatasaray við tveimur mörkum til viðbótar, fyrst Noa Lang og svo Sacha Boey.

Lokatölur 5-2 fyrir Galatasaray og er Juventus í algjörum skítamálum fyrir seinni leik liðanna eftir rúma viku. Galatasaray er með annan fótinn, jafnvel meira en það, inn í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner