Fotbolti.net
17.02.26 - 23:00
Enski boltinn

„Þá held ég að ég þurfi að hætta að halda með Liverpool"

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool er sagt leiða kapphlaupið um Anthony Gordon, kantmann Newcastle, en á sama tíma eru háværar sögur um það að Mohamed Salah sé að leika sitt síðasta tímabil hjá félaginu.

Umræða um framtíð 33 ára Egyptans hefur verið í fullum gangi síðan hann skaut á stjóra sinn, Arne Slot, í eldfimu viðtali fyrir áramót.

Ólgan minnkaði eftir að Salah kom til baka úr Afríkukeppninni og hann skoraði og lagði upp í bikarsigrinum gegn Brighton um liðna helgi.
„Ég er 100% á því að Salah fari frá Liverpool í sumar“
TENGT EFNI

„Ég er 100% á því að Salah fari frá Liverpool í sumar“

Það eru hins vegar enn í gangi háværar sögur um að hann fari til Sádi-Arabíu næsta sumar. Samningur hans við Liverpool rennur út sumarið 2027.

Gordon er sagður efstur á lista Liverpool ef Salah fer í sumar en Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, sló á létta strengi þegar hann var spurður út í þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu í gær.

„Þá held ég að ég þurfi að hætta að halda með Liverpool í smá tíma," sagði Magnús Haukur léttur.

„Þú getur ekki bara losað einn besta leikmann í sögu félagsins fyrir Anthony Gordon. Það segir sig sjálft."

Gordon, sem er 24 ára, hefur á þessu tímabili skorað tíu mörk í 35 leikjum fyrir Newcastle.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilurunum hér fyrir neðan. Einnig er hægt að horfa á þáttinn á Youtube en Enski boltinn var í fyrsta sinn í mynd í gær.

Anthony Gordon.

Anthony Gordon.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd

<b>Enski boltinn</b> í fyrsta sinn í mynd - Tudor tekur við Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.