Fotbolti.net
17.03.15 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Dick Advocaat tekinn við Sunderland (Staðfest)

Dick Advocaat tekinn við Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dick Advocaat hefur verið ráðinn stjóri Sunderland en hann tekur við liðinu af Gus Poyet sem var rekinn í gær.

Sunderland situr í 17. sæti í ensku úrvalsdeildinni og er einungis stigi frá falli eftir 4-0 tap gegn Aston Villa um helgina.
Advocaat fær níu leiki til að halda Sunderland í deild þeirra bestu.

,,Ég get ekki beðið eftir að byrja,\" sagði hinn 67 ára gamli Advocaat í morgun.

Advocaat er mjög reyndur þjálfari en hann var síðast landsliðsþjálfari Serbíu. Hann hefur þjálfað sex landslið á ferli sínum sem og lið eins og Rangers, PSV Eindhoven og Zenit St Petersburg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.