17.04.21 - 21:53
Victor Pálsson
Æfingaleikir: Jafnt hjá Fjölni og HK

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Íslensk lið eru nú á fullu að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið sem hefst um mánaðarmótin.
Það eru fjölmargir æfingaleikir spilaðir þessa dagana en fyrr í dag spiluðu Víkingur og Valur til dæmis í leik sem lauk 2-2.
Seinna í dag spilaði Þróttur Reykjavík við KV í æfingaleik sem lauk með 1-1 jafntefli.
Patryk Hryniewicki, lánsmaður frá Leikni, skoraði mark KV en Ólafur Fjalar Freysson gerði mark Þróttara. Ólafur er fæddur árið 2002.
Fjölnir og HK spiluðu einnig sín á milli en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Þróttur R. 1 - 1 KV
0-1 Patryk Hryniewicki
1-1 Ólafur Fjalar Freysson
Fjölnir 0 - 0 HK
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet