Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs, mun spila æfingaleik liðsins gegn Völsungi á Húsavík í dag.
Aron Birkir hefur verið frá vegna meiðsla en er allur að koma til. Á tímabili var óttast að Aron yrði frá út tímabilið vegna meiðsla í hné en hann er byrjaður að æfa aftur.
Aron Birkir hefur verið frá vegna meiðsla en er allur að koma til. Á tímabili var óttast að Aron yrði frá út tímabilið vegna meiðsla í hné en hann er byrjaður að æfa aftur.
Meiðslin eru á sparkfætinum en Aron sagðist aðspurður ekki hafa verið í vandræðum með útspörk til þessa.
Þór mætir, eins og fyrr segir, Völsungi í dag og liðið mætir þá KA í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins á miðvikudag. Þeir leikir eru liðir í undirbúningi liðsins fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar.
Aron er 22 ára og hefur ekkert spilað síðan 31. janúar gegn Magna í Kjarnafæðismótinu.
Athugasemdir