Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 17. maí 2021 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fyndnasta fagn ársins hér á Íslandi?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss vann 3-1 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna um síðustu helgi.

Anna María Friðgeirsdóttir kom Selfossi yfir í fyrri hálfleik en Betsy Hassett jafnaði metin fyrir Stjörnuna snemma í seinni hálfleiknum. Selfoss lét það ekki mikið á sig fá og skoraði tvö mörk með stuttu millibili til að vinna leikinn 3-1.

Hægt er að lesa nánar um leikinn með því að smella hérna.

Fyndnasta fagn tímabilsins átti sér líklega stað þegar Stjarnan skoraði í leiknum. Það átti ekki að vera eins fyndið og það var, en það endaði á því að vera mjög fyndið.

Betsy Hassett skoraði og leikmenn Stjörnunar föðmuðu hana. Varnarmaður Selfoss varð á milli í faðmlaginu á einhvern hátt en hún var ekki alveg sátt með það eins og sjá má hér að neðan. Virkilega fyndið.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner