Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. maí 2021 10:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Venezia mætir Lecce í undanúrslitum í kvöld
Bjarki Steinn
Bjarki Steinn
Mynd: Venezia
Fyrri leikirnir í undanúrslitum umspilsins í ítölsku B-deildinni fara fram í kvöld.

Íslendingalið Venezia mætir Lecce á heimavelli og Monza mætir Cittadella í hinni viðureigninni.

Seinni leikirnir fara fram á fimmtudag og mætast sigurvegarar einvíganna í úrslitaleik um síðasta farmiðann upp í efstu deild.

Venezia vann Chievo 3-2 eftir framlengdan leik á fimmtudag. Bjarki Steinn Bjarkason var ónotaður varamaður í leiknum. Óttar Magnús Karlsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Íslendingalið Brescia féll úr leik eftir 1-0 tap gegn Cittadella. Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Brescia en Hólmbert Aron Friðjónsson var fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Brescia á því ekki lengur möguleika á að fara upp um deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner