Fotbolti.net
30.06.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Haaland skaut Norðmönnum í 16-liða úrslit

HM: Haaland skaut Norðmönnum í 16-liða úrslit
Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsströndin 1 - 2 Noregur
0-1 Antonio Nusa ('39 )
1-1 Amad Diallo ('74 )
1-2 Erling Haaland ('86 )
Lestu um leikinn
Noregur er komið í 16-liða úrslit eftir sigur á Fílabeinsströndinni í kvöld. Leikurinn byrjaði rólega en Nicolas Pepe komst í fína stöðu eftir hálftíma leik en Kristoffer Ajer bjargaði í horn.

Norðmenn náðu forystunni tíu mínútum síðar þegar Antonio Nusa skoraði með glæsilegu skoti í fjærhornið.

Þeir voru nálægt því að bæta við marki í tvígang undir lok fyrri hálfleiks. Erling Haaland komst í dauðafæri en Ibrahim Sangare bjargaði glæsilega á síðustu stundu. Alexander Sörloth skallaði framhjá eftir hornspyrnu strax í kjölfarið.

Torbjörn Heggem var síðan nálægt því að skora en Fílabeinsstrendingar björguðu á línu.

Amad Diallo jafnaði metin eftir frábært samspil við Nicolas Pepe þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.

Það var hins vegar markahrókurinn Erling Haaland sem tryggði Norðmönnum sigurinn. Patrick Berg fékk boltann inn á teignum og lagði hann á Haaland sem stýrði boltanum í opið markið.

Diallo var nálægt því að jafna metin í blálokin en Örjan Nyland í marki Norðmanna varði aukaspyrnuna frá honum stórkostlega.

Noregur mætir Brasilíu í 16-liða úrslitunum.
HM: Haaland skaut Norðmönnum í 16-liða úrslit
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.