Fotbolti.net
30.06.26 - 20:04
Runólfur Trausti Þórhallsson

Ekki aðeins mark­verðir í vand­ræðum með boltann á HM

Ekki aðeins mark­verðir í vand­ræðum með boltann á HM
Canon

Mynd: EPA

Uhlsport
Adidas Trionda boltinn sem notaður er á HM hefur verið mikið til umræðu undanfarnar vikur þar sem markmenn mótsins hafa margir hverjir litið heldur klaufalega út. Eftir vítaspyrnukeppnir á þriðjudagskvöld virðist þó sem útileikmenn séu einnig í ákveðnum vandræðum með boltann í ár.
Ekki er langt síðan fjallað var um skoðanir Joe Hart, fyrrverandi markvarðar Manchester City og enska landsliðsins, á boltanum sem notaður er á HM í ár. Síðan þá hefur Kasper Schmeichel, fyrrverandi markvörður Leicester City ásamt fleiri liða og danska landsliðsins, tekið undir það sem Hart sagði.

HM boltinn gagnrýndur - „Það er eitthvað að“
TENGT EFNI

HM boltinn gagnrýndur - „Það er eitthvað að“



Ásamt því að ræða hvernig boltinn er settur saman - líkt og Hart gerði þá ræðir Schmeichel einnig um loftslagið á mótinu. Þar sem mótið fer fram víðs vegar um Bandaríkin ásamt Kanada og Mexíkó þá geta lið lent í því að loftslagið breytist gríðarlega milli leikja.

Markvörðurinn fyrrverandi útskýrir að í ákveðnum loftþéttleika geti það gerst að boltinn snúist ekki jafn mikið og venjulega ásamt því að fara örlítið hraðar yfir.

„Málið er að við viljum sjá mörk svo þeir framleiða bolta sem er hannaður til að skora mörk. Sem markvörður verður þú að vinna heimavinnuna þínar [þegar kemur að boltanum sem spilað er með].“

Þar sem það eru svo margir boltar í notkun í hverjum leik getur gripið breyst bolta frá bolta. Þá eru nýir boltar notaðir í hverri umferð útsláttarkeppninnar.

@bbc5livesport Big differences with this World Cup ball? ?? Kasper Schmeichel on the construction of it, less drag and why goalkeepers might be having problems ???? #FIFAWorldCup #WorldCup ? original sound - BBC 5 Live Sport


Hingað til hafa aðeins markverðir tuðað yfir hvernig boltinn er hannaður en ef til vill hafa Hollendingar og Þjóðverjar eitthvað að kvarta yfir nú eftir að þjóðirnar féllu úr leik í 32-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni. Holland gegn Marokkó og Þýskaland gegn Paragvæ.

Hjá Þýskalandi létu Kai Havertz og Nick Woltemade verja frá sér á meðan miðvörðurinn Jonathan Tah var eins langt frá því að hitta markið og hugsast getur. Hjá Paragvæ tókst Antonio Sanabria heldur ekki að hitta markið á meðan Fabián Balbuena lét ellismellinn Manuer Neuer verja frá sér.



Í vítaspyrnukeppni Hollands og Marokkó voru alls fjórar spyrnur af tíu sem hittu ekki markið. Hjá Hollandi voru það Justin Kluivert og Quinten Timber sem tókst ekki að hitta markrammann af 11 metra færi. Sömu sögu var að segja um Neil El Aynaoui og Achraf Hakimi hjá Marokkó.



Þannig þó markverðir mótsins - og þeir sem fjalla um mótið - hafi verið að tuða yfir boltanum undanfarið þá gæti verið að við heyrum álíka tuð frá útileikmönnum hvað á hverju, sérstaklega þeim sem brenna af vítaspyrnum á ögurstundu.

Fréttin hefur verið uppfærð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.