Fotbolti.net
30.06.26 - 16:39
Kári Snorrason

Ansu Fati seldur frá Barcelona (Staðfest)

Var næsta vonarstjarna Börsunga.

Var næsta vonarstjarna Börsunga.

Canon

Mynd: EPA

Ansu Fati hefur verið keyptur til Mónakó frá Barcelona fyrir tæpar tíu milljónir punda.

Fati tók við tíunni af Lionel Messi hjá Barcelona aðeins nítján ára gamall árið 2021 og var honum ætlað að vera næsta stórstjarna Börsunga.

Ferill Fati hefur einkennst af miklum meiðslum og hefur hann ekki náð þeim hæðum sem vonast var til.
Hann lék á láni hjá Mónakó á nýliðinni leiktíð. Þar tókst honum að skora 12 mörk í 30 leikjum. Tímabilið var hans besta á ferlinum ef litið er til markaskorunar.

Það er endursöluákvæði með í kaupsamningnum sem segir til um að Börsungar fái ákveðinn hluta af næsta kaupverði fyrir Ansu Fati ef hann verður seldur frá Mónakó.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.