Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 17. maí 2022 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu heimildarmyndina um endurkomu Söru Bjarkar
Sara Björk spilaði fyrsta landsleikinn í síðasta mánuði frá því í lok árs 2020.
Sara Björk spilaði fyrsta landsleikinn í síðasta mánuði frá því í lok árs 2020.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á Youtube of samfélagsmiðlum Puma hefur verið birt heimildarmynd um Söru Björk Gunnarsdóttur og endurkomu hennar á völlinn fjórum mánuðum eftir barnsburð.

Sara Björk er leikmaður Lyon í Frakklandi og eignaðist sitt fyrsta barn í nóvember. Puma er styrktaraðili Söru.

Myndin er tæplega tólf mínútna löng og í henni má sjá æfingaferli Söru á meðan hún var ófrísk og svo endurkomuferlið eftir fæðingu. Endurkomuferlið vakti athygli því hún náði að komast til baka í fremstu röð á skömmum tíma.

Mynd­in heit­ir „Do Both“ eða „Gerðu bæði“. Hún á að vera hvatn­ing fyr­ir konur í fótbolta og aðrar íþrótta­kon­ur um að þær geti haldið áfram að láta drauma sína ræt­ast og stundað áfram íþrótt sína í fremstu röð þó þær eign­ist börn og stofni fjöl­skyldu.

Sjá einnig:
Sara Björk ekki áfram hjá Lyon - „Margt sem kemur til greina"


Athugasemdir
banner