Fotbolti.net
17.05.24 - 06:00
Auglýsingar

Grindvíkingar fá frítt á heimaleiki Njarðvíkur

Grindvíkingar fá frítt á heimaleiki Njarðvíkur
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin
Knattspyrnudeild Njarðvíkur, Grjótgarðar og Íslenska gámafélagið hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða Grindvíkingum sem eru búsettir í Reykjanesbæ á heimaleiki Njarðvíkur í sumar.

Það eina sem Grindvíkingar þurfa að gera til að fá frítt árskort er að hafa samband við deildina á netfangið [email protected] og fá þá sent kort á appið STUBBUR.

Einnig er hægt að mæta í vallarhúsið hjá Njarðvík og fá kort þar. Frítt er fyrir börn á alla leiki.
Njarðvík hefur farið frábærlega af stað í Lengjudeildinni og unnið báða leiki sína til þessa. Liðið heimsækir Þrótt á laugardag og fær svo ÍBV í heimsókn viku síðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.