Manchester United lagði Nottingham Forest að velli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hefur þriðja mark leiksins vakið mikla umræðu á Englandi.
Skoðanir fótboltasérfræðinga eru afar tvískiptar þar sem einhverjir telja að dæma hafi átt hendi en aðrir eru sammála að markið hafi átt að standa.
Michael Salisbury dæmdi mark en var svo sendur í skjáinn og þá héldu margir að hann myndi fylgja fyrirmælum VAR-teymisins og dæma hendi, en hann gerði það ekki. Eftir langa athugun í skjánum stóð Salisbury við sína upprunalegu ákvörðun og dæmdi mark.
Gary Neville, fótboltasérfræðingur hjá Sky Sports, var steinhissa að Salisbury hafi ekki snúið ákvörðun sinni við eftir að hafa verið sendur í skjáinn.
Paul Robinson, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, er ósammála ákvörðun Salisbury.
„Þetta er augljóslega hendi, það á alltaf að dæma hendi á þetta allan liðlangan daginn. Ég viðurkenni samt að þetta er álitamál, að mínu viti eru þetta ekki augljós mistök dómara eins og er oft talað um að þetta þurfi að vera til að notast við VAR tæknina," segir Robinson.
„Þegar þú skoðar þetta í endursýningu þá notar Mbeumo handlegginn til að stjórna boltanum.
„Miðað við alla umræðuna sem hefur verið á tímabilinu og skýrar reglur um að ekki sé hægt að dæma mark eftir að sóknarmaður snertir bolta með hendi, þá skil ég ekki í hvaða heimi þetta er ekki hendi."
Sjáðu markið
17.05.2026 13:39
England: Man Utd hafði betur í fjörugum slag




