Fotbolti.net
17.05.26 - 16:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarninn

Byrjunarlið Keflavíkur og Stjörnunnar: Má ekki spila og tveir frammi

Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni.

Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna klukkan 17:30 hefst leikur Keflavíkur og Stjörnunnar í Bestu deild karla. Það munar einu stigi á liðunum fyrir leikinn en Keflavík er með stigi meira en Stjarnan sem er ekki eitthvað sem margir bjuggust við fyrir mót.

Stjarnan hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð á meðan Keflavík vann sinn síðasta leik gegn ÍA.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 1 Stjarnan
Það er ein breyting á milli leikja hjá Keflavík. Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni og má ekki spila þennan leik. Dagur Ingi Valsson kemur inn í hans stað.

Hjá Stjörnunni byrja bæði Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason, tveir stórir og stæðilegir sóknarmenn, og munu varnarmenn Keflavíkur hafa í fullu fangi með þá tvo.

Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson

Byrjunarlið Stjörnunnar:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
14. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
Andri Rúnar byrjar.

Andri Rúnar byrjar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.