Fótboltasérfræðingurinn Gary Neville var hneykslaður þegar Manchester United endurheimti forystu sína gegn Nottingham Forest er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Bryan Mbeumo virtist fá boltann í hendina innan vítateigs áður en boltinn barst til Matheus Cunha sem skoraði.
Varnarmenn Forest voru fljótir að biðja um hendi og var Michael Salisbury dómari sendur í skjáinn eftir að kollegar hans í VAR-herberginu höfðu skoðað atvikið.
Salisbury stóð lengi fyrir framan skjáinn til að skoða atvikið gaumgæfilega og ákvað að lokum að fara eftir upprunalegri ákvörðun sinni um að leyfa markinu að standa.
„Þetta er ótrúleg ákvörðun á allan hátt! Í alvöru, þetta er gjörsamlega hlægilegt. Reglurnar eru skýrar og VAR-teymið hefur sagt við dómarann að þetta ætti að vera hendi," sagði Neville í útsendingu Sky Sports.
„Ég trúi ekki mínum eigin augum. Þetta er augljós hendi, ég veit ekki hvað ég á að segja. Ég dáist að dómurum sem þora að standa við eigin ákvarðanir en þetta var ekki rétti tíminn til þess."
17.05.2026 14:19
Annað mark United umdeilt: „Þetta er augljós hendi"



