Fotbolti.net
17.05.26 - 21:23
Kári Snorrason

Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar

Auglýsing
Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KR og Fram skildu jöfn að á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Leikar enduðu 2-2 en Framarar jöfnuðu metin á 90. mínútu eftir að KR hafði komist yfir átta mínútum áður.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 2 - 2 Fram
„Ég met þennan leik sem svo að þetta hafi verið sanngjörn úrslit. Tvö ólík lið að mætast, tveir ólíkir stílar. Sem var mjög áhugavert og gaman að sjá. Ég fer sáttur á koddann í kvöld. Mér fannst mér við eiga frábæra kafla í þessum leik.“

„Við komum okkur í góðar stöður, spiluðum oft vel í gegnum þá á miðjunni. Svo liðum við aðeins fyrir lélegar ákvarðanatökur. Eins og leikurinn var settur upp að þá var kannski ekki oft fjölmennt hjá okkur í vítateignum.“

„Partíin voru annars staðar heldur en í vítateignum hjá Fram. Þá þarf að finna jafnvægið í því að vera fleiri annars staðar á vellinum en sjá svo til þess að teigurinn sé fylltur.“


Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.