Fotbolti.net
17.05.26 - 14:49
Ívan Guðjón Baldursson

Pereira: Dómaraákvörðun réði úrslitum

Pereira: Dómaraákvörðun réði úrslitum
Canon

Mynd: EPA

Vítor Pereira þjálfari Nottingham Forest svaraði spurningum eftir 3-2 tap í afar fjörugum leik gegn Manchester United í dag.
Þó að lokatölur hafi verið 3-2 hefðu fleiri mörk getað verið skoruð. Það hefðu jafnvel færri mörk getað verið skoruð eftir afar umdeilt mark hjá Matheus Cunha, þegar boltinn virtist fara í hendi á liðsfélaga hans í aðdragandanum en Michael Salisbury dómari neitaði að dæma hendi.

„Þetta var klikkaður leikur og strákarnir lögðu allt í sölurnar, þeir spiluðu af miklu hjarta og sýndu metnað og voru óheppnir að tapa. Þetta var frábær leikur fyrir utan eina dómaraákvörðun sem ég er ósammála sem endaði á að ráða úrslitum," sagði Pereira.

„Ég horfði á endursýninguna í iPad en hélt mér mjög rólegum á hliðarlínunni. Ég held að við þurfum að setjast niður og funda með dómarasambandinu til að leggja skýrari línur varðandi ákveðna hluti þegar kemur að hendi innan vítateigs. Eins og staðan er í dag þá hefur verið svo mikið ósamræmi í dómgæslu yfir tímabilið að enginn veit hvað má og hvað má ekki gera. En maður verður að samþykkja þetta."

Pereira er búinn að bjarga Forest frá falli og er með nýtt samningstilboð frá félaginu á borðinu.

„Þetta er mjög sérstakur hópur með sterkan persónuleika og mikil gæði innanborðs. Þessir strákar eru tilbúnir til að gera allt í sínu valdi til að ná í góð úrslit."

Gary Neville um markið: Hlægileg ákvörðun
TENGT EFNI

Gary Neville um markið: Hlægileg ákvörðun

Pereira: Dómaraákvörðun réði úrslitum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.