Xabi Alonso var kynntur sem nýr þjálfari Chelsea í morgun og er hann mjög spenntur fyrir nýju starfi eftir að hafa stýrt B-liði Real Sociedad, Bayer Leverkusen og Real Madrid á upphafi þjálfaraferilsins.
Alonso mun ekki taka við þjálfarastarfinu fyrr en í sumar og fær Calum McFarlane því að klára tímabilið sem bráðabirgðaþjálfari.
Chelsea fór í gegnum tvo aðalþjálfara á leiktíðinni, þá Enzo Maresca og Liam Rosenior. Maresca er í dag orðaður við Manchester City á meðan Rosenior var ráðinn frá Strasbourg, sem er systurfélag Chelsea.
„Chelsea er eitt af stærstu fótboltafélögum heims og það fyllir mig af miklu stolti að taka við sem þjálfari aðalliðsins. Eftir samræður mínar við eigendahóp og stjórnendur félagsins er augljóst að við deilum svipuðum metnaði og sömu markmiðum," segir Alonso.
„Við viljum byggja upp fótboltalið sem getur barist um alla stóru titla sem eru í boði hverju sinni. Það eru mögnuð gæði í leikmannahópinum hérna og miklir möguleikar fyrir bætingar. Það er mikill heiður fyrir mig að fá að leiða þennan klúbb áfram.
„Núna fer öll einbeitingin í að skapa rétta menningu innan búningsklefans, við þurfum að sýna mikla vinnusemi og þá getum við unnið titla."
17.05.2026 08:47
Xabi Alonso tekinn við Chelsea (Staðfest)


