17.06.16 - 11:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alberto Paloschi til Atalanta (Staðfest)

Paloschi er farinn frá Swansea eftir stutta dvöl

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Swansea er búið að selja sóknarmanninn Alberto Paloschi til Atalanta fyrir óuppgefið fé.
Paloschi gekk til liðs við Gylfa Þór Sigurðsson og félaga hans í Swansea í janúar fyrir 8 milljónir punda.
Hann skoraði átta mörk fyrir Chievo fyrir áramót, en eftir að hann kom til Swansea náði hann aðeins að skora tvö.
Líklegt þykir að kaupverðið sé í kringum 5 milljónir punda. Ef satt reynist þýðir það að Swansea hafi tapað 3 milljónum punda á aðeins sex mánuðum á leikmanninum.
Hann er annar sóknarmaðurinn sem Swansea losar sig við eftir tímabilið, en áður var Eder seldur til Lille í Frakklandi.