Fotbolti.net
17.06.16 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Álitsgjafar svara: Hver er lykillinn til að vinna Ungverja?

Markinu gegn Portúgal fagnað.

Markinu gegn Portúgal fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland mætir Ungverjalandi í öðrum leik sínum á EM klukkan 16:00 í Marseille á morgun.

Fótbolti.net fékk nokkra álitsgjafa til að rýna í leikinn.

Hver er lykillinn fyrir Ísland til að vinna Ungverja?
Benedikt Bóas Hinriksson, Morgunblaðið
Fyrir mótið hefði ég sagt að lykillinn gegn Ungverjum væri þolinmæði enda eru þeir með gott varnarlið sem fær ekki mikið af mörkum á sig. En svo bara snýttu þeir Austurríki og voru ógeðslega góðir. Þannig ég hef bara ekki hugmynd. Ætli það sé ekki að koma Gylfa meira inn í spilið, hann sér um þetta svona yfirleitt. Ef hann nær að taka leikinn yfir þá vinnum við (Staðfest)

Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Þórs
Lykillinn er að minu mati að vera þolinmóðir og halda skipulaginu sem hefur skilað mönnum svo langt hingað til. Ekki fara fram úr sér sóknarlega en þó sýna sjálfstraust í að bæta við leik liðsins. Það væri gaman að sjá menn ögn svalari á boltanum sóknarhelmingnum og virkja kantana og mögulega bakverðina pínu meira því ísland er með gríðar sterka/klóka menn inni í teignum til að taka við krossum. Klára varnarleikinn af sér allan leikinn og nýta þau fáu færi sem munu gefast. Gæti trúað því að fast leikatriði gæti gert gæfumuninn i þessum leik.

Jörundur Áki Sveinsson, aðstoðarþjálfari Leiknis R.
Lykillinn er að halda sama skipulagi, ná fram sömu geðveiki og var í leiknum á móti Portúgal. Einnig að ná mönnum að sama skapi niður á jörðina, ná jafnvægi í spennustiginu, þar koma Heimir og Lars sterkir inn. Búið er að leikgreina lið Ungverja vel og vandlega og það verður örugglega reynt að nýta þá greiningu til þess að finna leiðir sem hægt er að nýta. Fyrirfram töldu flestir að leikurinn við Ungverja væri algjör lykilleikur fyrir okkur og miðað við úrslitin í leiknum við Portúgal þá er hann það svo sannarlega.

Tryggvi Guðmundsson, fyrrum landsliðsmaður
Lykillinn er að halda skipulagi og þora að sækja.

Guðmundur Karl Guðmundsson, fyrirliði Fjölnis
Ég hugsa við komum til með að vera töluvert meira með boltann en á móti Portúgal í síðasta leik þannig það er lykilatriði að halda boltanum vel og gera hlutina á góðu tempói. Ungverjarnir koma til með að spila svipað og við gerðum á móti Portúgal, liggja til baka og beita hröðum upphlaupum sem þeir gerðu virkilega vel í fyrsta leik á móti Austurríki. Þannig við megum ekki vera að tapa boltanum á slæmum stöðum og reyna að klára sóknirnar okkar með skoti og komast fljótt aftur fyrir boltann í varnarleiknum. En lykillinn að sigri á móti Ungverjum er held ég að halda búrinu hreinu. Við erum alltaf að fara að skora í þessum leik og ef við hendum í clean sheet þá liggur það í augum uppi að við hirðum stigin þrjú.
Álitsgjafar svara: Hver er lykillinn til að vinna Ungverja?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.