17.06.16 - 16:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bournemouth semur við ungan Bandaríkjamann (Staðfest)

Hyndman í leik með U23 ára landsliði Bandaríkjanna

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarliðið Bournemouth er búið að festa kaup á Emerson Hyndman, en hann kemur frá Fulham.
Hyndman er tvítugur Bandaríkjamaður sem kom til Fulham árið 2011. Hann á 24 leiki að baki með Fulham í Championship-deildinni.

Bournemouth komst að samkomulagi við Fulham um uppeldisbætur, en Hyndman leikur á miðjunni.
Þetta eru fyrstu kaup Bournemouth þetta sumarið, en leikmaðurinn mun koma til félagsins í byrjun júlí.
Bournemouth kom mörgum á óvart með frammistöðu sinni í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, en liðið endaði í 16. sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.