Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. júní 2021 21:40
Victor Pálsson
Keane: Kannski þarf Pogba að taka of mikla ábyrgð
Mynd: Getty Images
Roy Keane, goðsögn Manchester United, vill sjá meira frá miðjumanninum Paul Pogba í treyju félagsins.

Keane fylgist með Pogba á EM með franska landsliðinu þessa dagana og er afar hrifinn af hans frammistöðu þar.

Keane er á sama máli og aðrir að Pogba spili mun betur í landsliðstreyjunni en hann gerir hjá enska félaginu.

„Við höldum áfram að tala um Paul Pogba. Það er engin spurning um að hann sé hæfileikaríkur drengur," sagði Kane.

„Ég vil samt meira frá honum, sérstaklega hjá Manchester United. Það er engin spurning að hann sé með betri leikmenn í kringum sig hér og líður betur. Hann spilar vinstra megin og passar inn í kerfið."

„Kannski þarf hann að taka of mikla ábyrgð hjá Man Utd, kannski eru ekki nógu margir leikmenn sem geta gert það."

„Augljóslega er munur á Pogba hjá Frakklandi og þeim sem við þekkjum hjá United."
Athugasemdir
banner
banner
banner