Holland er komið í 16-liða úrslit EM eftir sannfærandi sigur á Austurríki í kvöld, 2-0.
Memphis Depay og Denzel Dumfries skoruðu mörk Hollands sem vann Úkraínu 3-2 í fyrstu umferð.
Maarten Stekelenburg er í marki Hollands þar sem Jasper Cillessen gat ekki tekið þátt í mótinu.
Stekelenburg er afar reynslumikinn en hann er 38 ára og 268 daga gamall.
Með honum í liði er ungstirniði Ryan Gravenberch sem kom inná sem varamaður í þessum leik.
Aldursmunurinn á þessum leikmönnum eru yfir 19 ár sem er það mesta sem hefur sést í leik á EM.
19y 236d - The age difference of 19 years & 236 days between Maarten Stekelenburg (38y 268d) & Ryan Gravenberch (19y 32d) is the biggest age-gap between two teammates in a European Championship game. Generations. #EURO2020 pic.twitter.com/vihRZUsN4J
— OptaJohan (@OptaJohan) June 17, 2021
Athugasemdir