Southampton er búið að staðfesta að samkomulag hefur náðst við Anderlecht um félagaskiptin á varnarmanninum Wesley Hoedt.
Hoedt er hollenskur og þótti einn af efnilegri miðvörðum Evrópu á sínum tíma. Hann var lykilmaður í vörn Lazio áður en sumarið 2017 var hann keyptur til Southampton fyrir 15 milljónir punda.
Óljóst er hversu mikið Anderlecht greiðir fyrir Hoedt en miðvörðurinn átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Southampton.
Hoedt var hjá Lazio að láni á síðustu leiktíð og þótti standa sig þokkalega, þó ekki nógu vel til að vera keyptur.
Hinn 27 ára gamli Hoedt á 6 leiki að baki fyrir A-landslið Hollendinga.
#SaintsFC have come to an agreement with @rscanderlecht for the transfer of defender @wesleyhoedt:
— Southampton FC (@SouthamptonFC) June 17, 2021
Athugasemdir