13.06.26
Markaskorun á HM í sögulegu samhengi
EFTIR ÍVAR BJÖRGVINSSON
Það sem allir fótboltaáhugamenn, sama hvaða lið þeir styðja, geta verið sammála um er það að við elskum mörk. Skemmtanagildi fótboltaleikja er gjarnan metið út frá fjölda marka skoraðra og var mikið rætt og ritað um fækkandi mörk á nýyfirstöðnu tímabili í Ensku úrvalsdeildinni þar sem Arsenal voru oft gagnrýndir fyrir leiðinlegan leikstíl sem skilaði þó titlinum í hús. Heimsmeistarakeppnin í Katar var þó að mörgum talin ein sú skemmtilegasta í seinni tíð og ef miðað er við markafjölda er það hárrétt. Aldrei hafa verið skoruð fleiri mörk á stórmóti, en keppnin sá 172 mörk í 64 leikjum, um 2.69 mörk í leik. Nú þegar fólk veltir því fyrir sér hvort knattspyrnan sé að þróast á neikvæðan hátt verður áhugavert að fylgjast með því hver markafjöldinn á HM verður þar sem glænýtt fyrirkomulag verður til staðar. En hvernig hefur markafjöldi HM verið í sögulegu samhengi?







