Fotbolti.net
25.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heillaði gegn Stjörnunni og verður liðsfélagi Tómasar

Heillaði gegn Stjörnunni og verður liðsfélagi Tómasar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Færeyingurinn Aron Benjaminsen er á leið til Hearts í Skotlandi frá færeyska félaginu Vikingur Götu.

Benjaminsen er 18 ára hægri vængmaður en hann skoraði tvö mörk í einvíginu gegn Stjörnunni í forkeppni Sambandsdeildarinnar sem Stjarnan vann.
Hann mun spila sinn síðasta leik fyrir Víking á föstudaginn og heldur síðan til Skotlands samkvæmt færeyska fréttamanninum Tróndur Arge.

Hann hefur skorað níu mörk og lagt upp átta í 25 leikjum fyrir Viking á þessu ári. Þess má geta að Fróði Benjaminsen, pabbi Aron, spilaði með Fram sumarið 2004.

Hearts er með þrjú stig eftir tvær umferðir í skosku deildinni. Tómas Bent Magnússon er leikmaður liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.