Fotbolti.net
17.06.26 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói útherji

Mourinho að ráða gamlan lærisvein sinn

Sami Khedira.

Sami Khedira.

Canon

Mynd: EPA

Sami Khedira er sagður á leið inn í þjálfarateymi José Mourinho hjá Real Madrid.

Khedira lék undir stjórn Mourinho á fyrra tímabili Portúgalans hjá spænska stórveldinu á árunum 2010 til 2013 og virðist nú ætla að hefja þjálfaraferil sinn á Santiago Bernabéu.
Khedira, sem er 39 ára gamall, lagði skóna á hilluna árið 2021 og hefur ekki áður verið í þjálfarastarfi.

Heimsmeistarinn frá 2014 gekk til liðs við Real Madrid frá Stuttgart sumarið 2010, á sama tíma og Mourinho tók við liðinu. Khedira lék alls 161 leik fyrir félagið á fimm árum sínum í spænsku höfuðborginni. Á þeim tíma varð hann Spánarmeistari með liðinu árið 2012, þegar Real Madrid setti stigamet í deildinni undir stjórn Mourinho. Þá vann hann einnig Meistaradeild Evrópu árið 2014 og Copa del Rey tvívegis áður en hann samdi við Juventus árið 2015.

Fyrrum samherji Khedira hjá Real Madrid, varnarmaðurinn Pepe, var einnig sagður til greina koma í starfið. Portúgalinn lék í áratug með félaginu og starfaði sömuleiðis undir stjórn Mourinho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.