Man Utd fær ekki aftur greitt út af Carreras

Carreras í leik með Real Madrid.

Mynd: EPA

Carreras í leik með Real Madrid.

Mynd: EPA
Manchester United mun ekki fá frekari fjárhagslegan ávinni af því ef Alvaro Carreras yfirgefur Real Madrid í sumar.
Bakvörðurinn knái er núna sterklega orðaður við Chelsea fyrir tímabilið sem er framundan.

Manchester United tryggði sér söluhlut þegar Benfica seldi Carreras til Real Madrid síðasta sumar. Félagið setti inn 15% söluákvæði þegar hann var seldur til Benfica sem gaf United umtalsverða upphæð þegar leikmaðurinn var seldur áfram til Madrídar.
United fékk um 7,5 milljónir punda úr 38 milljón punda viðskiptunum þegar Carreras fór frá Benfica til Real Madrid.
Söluákvæðið gilti þó einungis fyrir næstu félagaskipti leikmannsins, sem þýðir að möguleg félagaskipti til Chelsea myndu ekki skila félaginu neinu.
Carreras hefur verið orðaður við fleiri félög en Chelsea í sumar, en framtíð hans í Madrid er enn til skoðunar. Real Madrid var að ganga frá kaupum á Marc Cucurella frá Chelsea og gæti Carreras farið til London í staðinn fyrir hann.