Fotbolti.net
16.06.26 - 20:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Yamal mjög alvarlegur á æfingu

Lamine Yamal.

Lamine Yamal.

Canon

Mynd: EPA

Spænskir fjölmiðlar fylgdust með æfingu spænska liðsins í Bandaríkjunum í dag.

Spánverjar byrjuðu heimsmeistaramótið afar illa gegn Grænhöfðaeyjum í gær. Fyrirfram var búist við mjög öruggum sigri Spánar en niðurstaðan var 0-0 jafntefli.
Frammistaða Spánar verðskuldaði ekkert meira, þetta var hægt og lélegt hjá þeim.

Lamine Yamal, stærsta stjarna Spánar, er að jafna sig af meiðslum. Hann kom inn af bekknum í gær en náði ekki að hafa mikil áhrif á leikinn.

Á Spáni er fjallað um það að Yamal hafi ekki haft neinn húmor fyrir leiknum í gær og hafi verið alvarlegur á æfingu í dag, það hafi ekkert verið um brandara og hlátur hjá ungstirninu.

Næsti leikur Spánar er gegn Sádi-Arabíu á sunnudaginn.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.