Valur fær liðið sem sló Blika tvisvar út

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Valsmenn mæta Íslandsvinunum í Zrinjski Mostar í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu en dregið var í höfðustöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag.
Í gær var dregið í fyrstu umferð. Stjarnan mætir Víkingi frá Færeyjum og í dag fór drátturinn fyrir aðra umferð fram.
Þar mætti Valur liðið sem hefur strítt Breiðabliki á síðustu árum, en það er Zrinjski Mostar frá Bosníu.
Zrinjski hefur tvisvar mætt Blikum. Sumarið 2023 mættust þau í 3. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar þar sem Zrinjski hafði samanlagðan 6-3 sigur og síðan aftur á síðasta ári á sama stigi keppninnar.
Liðin skildu jöfn, 1-1, í fyrri leiknum, en sá síðari tapaðist 2-1.
Nú fær Valur tækifæri til að hefna fyrir Blika.
Ef Stjörnumenn vinna færeysku Víkingana þá munu þeir mæta Differdange frá Lúxemborg eða Ilves frá Finnlandi.
Önnur umferðin er spiluð dagana 23. og 30. júlí.