Hartmann fylgir Frey til Þrándheims - Fjórða lið þeirra saman

Freyr Alexandersson og hans tryggi aðstoðarmaður, Jonathan Hartmann.

Mynd: Brann

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Freyr Alexandersson hefur skrifað undir samning við norska stórliðið Rosenborg til 2029 en félagið tilkynnti þetta í morgun.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að Jonathan Hartmann muni fylgja Frey og verða hans aðstoðarmaður en Rosenborg verður því fjórða félagið þar sem sá danski verður Frey til aðstoðar.
Þeir kynntust þegar Freyr tók við sem aðalþjálfari Lyngby í Danmörku en Hartmann var þar aðstoðarþjálfari. Hartmann fylgdi Frey til Kortrijk í Belgíu, síðan til Brann og nú til Þrándheims.

TENGT EFNI
Freyr tekinn við Rosenborg (Staðfest)
„Ævintýri mitt og Freys, við erum bara að byrja. Það er mitt mat. Þetta er fyrsti kaflinn að því sem ég vona að verði margar kaflar um okkar samstarf þar sem við erum að sigra fótboltaheiminn saman. Það er mitt plan," sagði Hartmann í viðtali við Fótbolta.net fyrir tveimur árum.

Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg en hann og Freyr þekkjast gríðarlega vel. Alfreð var leikmaður undir stjórn Freys, bæði hjá landsliðinu og Lyngby.
„Það er mikil ánægja að bjóða Frey velkominn til Þrándheims. Við trúum að hann sé rétti þjálfarinn fyrir Rosenborg. Með fjlbreyttri reynslu sinni geti hann leitt liðið fram veginn," segir Alfreð á heimasíðu Rosenborgar.
Rosenborg er sögulega séð stærsta félagið í Noregi en hefur verið í talsverðu brasi undanfarin misseri. Rosenborg er þessa stundina í næst neðsta sæti norsku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
Planið að sigra fótboltaheiminn með Freysa - Segir hann í hæsta klassa í Evrópu