Zlatan með skot á bandarísku sérfræðingana - „Fáfrótt fólk kallar þetta hroka“

Zlatan er ekki þekktur fyrir að tala undir rós

Mynd: EPA

Zlatan Ibrahimovic er ekki eins og flestir, sem er gott og blessað, því hann hefði líklega ekki orðið fótboltamaðurinn sem hann var án karaktersins, en hann er greinilega orðinn dauðþreyttur á að vinna með bandarísku sérfræðingunum á FOX.
Zlatan var í settinu með þeim Alexei Lalas og Thierry Henry eftir leik Frakklands og Senegals í gær.
Landon Donovan, sem er einn besti leikmaður í sögu Bandaríkjanna, sagði eftir fyrri hálfleikinn að Frakkarnir væru hrokafullir og væru að spila undir getu.
Frakkarnir voru ekki sannfærandi í fyrri hálfleiknum, en sýndu gæði sín í þeim síðari og unnu leikinn 3-1.
Í hálfleik ræddi Lalas um ummæli Donovan og sagðist geta tekið umræðuna um það hvort Frakkarnir hafi sýnt hroka en Zlatan var fljótur að grípa inn í.
„Þetta er ekki hroki, þetta er sjálfstraust. Fáfrótt fólk kallar þetta hroka en gáfað fólk kallar þetta sjálfstraust,“ sagði Zlatan og voru viðbrögð Henry kostuleg.
Hægt er að sjá þessa skemmtilegu klippu hér fyrir neðan.

Zlatan ???????????? pic.twitter.com/tgeGZ28Xg1
— Dave Seperson (@DaveSeperson) June 16, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!