Fotbolti.net
17.06.26 - 11:05
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður Ástralíu stjörnusleginn á fréttamannafundi

Awer Mabil

Awer Mabil

Canon

Mynd: EPA

Awer Mabil, leikmaður ástralska landsliðsins, varð stjörnusleginn á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Bandaríkjunum sem er spilaður á föstudag.
Mabil er þrítugur vængmaður sem hefur skorað 10 mörk í 38 leikjum fyrir ástralska landsliðið.

Hann leikur með Castellón í spænsku B-deildinni, en hann roðnaði örlítið þegar hann sá ástralska lýsandann David Basheer á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Bandaríkjunum.

Basheer spurði Mabil út í pressuna fyrir leikinn, en Mabil gleymdi spurningunni um leið og hann lýsti yfir aðdáun sinni á Basheer.

„Þú verður að afsaka mig, en þú ert David frá SBS, ekki satt? Ég ólst upp við að horfa á þig, þannig að já, ég gleymdi eiginlega spurningunni,“ sagði Mabil.

Basheer speglaði þá svar Mabils og sagði að hann hefði einmitt alist upp við að horfa á hann spila.

„Ég fór bara að líta til baka því ég horfði á SBS þegar ég var að alast upp. Stöðin var í opinni dagskrá og þú varst þáttastjórnandi í The World Game, þar sem ég sá allar klippurnar úr heimsfótboltanum.“

„Ég vil byrja á að þakka þér fyrir að hafa gefið mér allar þessar góðu minningar sem krakki. Og já, ég gleymdi líka spurningunni þinni,“ sagði Mabil í þessu einlæga og hjartnæma samtali.“

Mabil vék næst að umræðunni um flóttafólk og sagði hversu þakklátur hann væri fyrir að Ástralía hefði tekið vel á móti honum og nokkrum öðrum liðsfélögum hans í landsliðinu.

„Þetta var augnablik til að sýna fyrir hvað Ástralía stendur. Þetta er land ólíkra menningarheima og það gerir það að besta landi í heimi. Þú ert með allan heiminn á einum stað og nú er landsliðið fulltrúi þess. Þar koma saman leikmenn með ólíkan bakgrunn og spila í sömu treyjunni.“

„Ástæðan fyrir því að þetta fór eins og eldur í sinu um netið er sú að þetta var hrátt. Leikmennirnir sögðu nákvæmlega það sem þeir vildu segja og þetta var allt sett saman. Þetta hafði þessi áhrif vegna þess að Ástralir geta tengt við það.

„Mig langar mig að segja við alla þá sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín, hvar sem er í heiminum, að við stöndum með ykkur. Við erum núna á stærsta sviðinu, á stóru móti, og viljum segja ykkur að allt er hægt. Haldið áfram,“
sagði hann enn fremur.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Leikmaður Ástralíu stjörnusleginn á fréttamannafundi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.