Byrjaði að dæma Fylkisleik og flautar nú úrslitaleik HM

Albert Brynjar Ingason, einn af sérfræðingum HM stofunnar, spilaði í fyrsta alþjóðlega leik Vincic.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Búið er að tilkynna að hinn slóvenski Slavko Vincic muni dæma úrslitaleik Spánar og Argentínu á HM á sunnudag.
Vincic er 46 ára og vanur því að dæma stórleiki, bæði hjá landsliðum og í Meistaradeild Evrópu.
Hann varð alþjóðlegur FIFA dómari 2010 og hans fyrsti leikur á erlendri grundu var hér á Íslandi. Hann dæmdi þá leik Fylkis og Torpedo Zhodino frá Belarús sem fram fór á Laugardalsvelli og steig hratt upp metorðastigann í kjölfarið.

TENGT EFNI
Slóveni dæmir úrslitaleik HM
Torpedo vann 3-1 útisigur en Vincic hafði nóg að gera og dæmdi báðum liðum vítaspyrnu. Pape Mamadou Faye kom Fylki yfir af vítapunktinum eftir að brotið var á Andrési Má Jóhannessyni.
„Ágætur, dæmdi samt oft á væg brot," skrifaði Gísli Erlendur Marinósson í umfjöllun Fótbolta.net um frammistöðu Vincic.
Vincic er ekki þekktur fyrir það í dag að dæma á væg brot. Hann hefur verið sérstaklega fenginn til að dæma erfiða leiki í tyrknesku og grísku deildinni þar sem rígurinn hefur verið mikill og hætta á óeirðum og látum.

Slavko Vincic að störfum á HM.

Mynd: EPA