Fotbolti.net
17.07.26 - 09:40
Elvar Geir Magnússon

Sjáðu atvikið stórfurðulega - Einn ótrúlegasti leikur sem Siggi Raggi hefur upplifað

Sigurður Ragnar Eyjólfsson í stúkunni með Gunnari Einarssyni.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson í stúkunni með Gunnari Einarssyni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Færeyska liðið NSÍ Runavík, sem Sigurður Ragnar Eyjólfsson stýrir, komst áfram í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 3-2 sigur liðsins í einvígi gegn Hamrun frá Möltu.

Petur Knudsen reyndist hetja færeyska liðsins þegar hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu uppbótartíma á Möltu í gær.

Vítaspyrnudómurinn var með því furðulegra sem sést hefur í langan tíma, en Emerson Marcelina, varnarmaður Hamrun, taldi boltann vera úr leik þegar hann greip hann með höndum. Ekki er notast við VAR og því ekki hægt að skoða atvikið aftur, en dómararnir voru vissir í sinni sök og dæmdu vítaspyrnu sem Knudsen skoraði örugglega úr.

Sjáðu atvikið hér að neðan
Íslendingaliðið skráði sig á spjöld sögunnar eftir stórfurðulegt atvik í lokin
TENGT EFNI

Íslendingaliðið skráði sig á spjöld sögunnar eftir stórfurðulegt atvik í lokin

„Einn rosalegasti fótboltaleikur sem ég hef upplifað, það varð allt vitlaust!!!" skrifaði Siggi Raggi á Instagram.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.