Viðvörun vegna loftgæða í aðdraganda úrslitaleiksins

HM stemning í New York.

Mynd: EPA

HM stemning í New York.

Mynd: EPA
New York og New Jersey hafa gefið út viðvörun vegna slæmra loftgæða af völdum skógarelda í nágrenninu. Spánn og Argentína leika til úrslita á HM á sunnudag, á MetLife vellinum í New Jersey.
Íbúar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra ef mögulegt er því loftgæðin standast ekki heilsuverndarmörk.
Íbúar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra ef mögulegt er því loftgæðin standast ekki heilsuverndarmörk.

TENGT EFNI
HM um helgina - Hver verður heimsmeistari?
Fram kemur í fréttum að dansarar sem hafi verið að æfa á MetLife vellinum þar sem þeir koma fram í kringum úrslitaleikinn hafi talað um að aðstæður væru erfiðar og loftið þungt. Í vikunni fór fram leikur milli Gotham FC og Washington Spirit í bandaríska kvennaboltanum og vegna lélegra loftgæða voru tvö hlé gert í hvorum hálfleik.
Búist er við því að loftgæði á svæðinu batni í dag og spáð er rigningu á laugardag sem ætti enn frekar að hjálpa til.
Búist er við því að loftgæði á svæðinu batni í dag og spáð er rigningu á laugardag sem ætti enn frekar að hjálpa til.


Mynd: EPA




