Zinedine Zidane sagði á dögunum að hann gæti komið til með að nota Gareth Bale og James Rodriguez sem voru ekki taldir vera í náðinni hjá honum.
Real Madrid byrjar deildartímabilið gegn Celta Vigo og er Bale í byrjunarliðinu. James er á bekknum.
Það verður áhugavert að fylgjast með Real sem átti skelfilegt tímabil án Cristiano Ronaldo og Zidane.
Nú er Zidane kominn aftur ásamt nokkrum stórstjörnum og Real í dauðafæri á að vinna þrjú stig á Barcelona sem tapaði fyrir Athletic Bilbao í gær.
Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Celta Vigo: Blanco, Kevin, Araujo, Costas, Olaza, Lobotika, Beltran, Mendez, D. Suarez, Aspas, Fernandez.
Varamenn: Villar, Jorge, Aidoo, Sergio, Cheikh, Losada, Sisto.
Real Madrid: Courtois, Odriozola, Ramos, Varane, Marcelo, Modric, Casemiro, Kroos, Bale, Benzema, Vinicius Jr.
Varamenn: Navas, Nacho, Militao, James, Isco, Jovic, Lucas Vazquez.
Athugasemdir