Fotbolti.net
22.11.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Messi fyrstur í sögunni til að vera markahæstur tvö ár í röð

Inter í erfiðri stöðu í úrslitakeppninni

Messi fyrstur í sögunni til að vera markahæstur tvö ár í röð
Canon

Mynd: EPA

Argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messi endaði sem markahæsti leikmaður deildartímabils MLS deildarinnar annað árið í röð þrátt fyrir að vera 39 ára gamall.
Griezmann valinn sem nýliði ársins
TENGT EFNI

Griezmann valinn sem nýliði ársins

Messi er fyrstur til að vera markahæstur í MLS deildinni tvö ár í röð frá stofnun deildarinnar fyrir 30 árum síðan.

Hann skoraði 26 mörk og gaf 13 stoðsendingar til að hjálpa Inter Miami í úrslitakeppnina, þar sem liðið tók á móti Columbus Crew í 16-liða úrslitum í nótt.

Columbus náði forystunni með marki úr vítaspyrnu og var leikmaður Inter svo rekinn af velli þegar hann fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili, svo Inter var marki undir og manni færri eftir fyrri hálfleikinn.

Columbus bætti tveimur mörkum við snemma í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 0-3. Inter Miami þarf því stórsigur á útivelli þegar liðin mætast aftur næstu helgi.


Messi fyrstur í sögunni til að vera markahæstur tvö ár í röð
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.