Elvar Geir og Tómas Þór standa vaktina í hljóðveri X977 í útvarpsþættinum Fótbolti.net, milli 12 og 14, alla laugardaga.
Inkasso-hornið verður á sínum stað í þættinum í dag. Óliver Dagur Thorlacius og Arnar Þór Helgason, leikmenn Gróttu, verða gestir þáttarins.
Æsilegir undanúrslitaleikir í Mjólkurbikarnum verða gerðir upp og hitað upp fyrir næstu umferð í Pepsi Max-deildinni.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, verður á línunni.
Enski boltinn kemur svo auðvitað við sögu!
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir