Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 17. ágúst 2019 13:49
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel: Við erum sterkara lið með Neymar
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel þjálfari PSG segir að Neymar gæti verið áfram hjá félaginu þrátt fyrir vilja til að skipta yfir til Barcelona.

PSG er reiðubúið til að selja Neymar en hann er aðeins falur fyrir rétt verð, sem er talið nema um 222 milljónum evra. Það er verðið sem PSG greiddi fyrir Neymar sumarið 2017.

„Staðan er enn sú sama, það hefur ekkert breyst. Ef við náum ekki að leysa stöðuna þá verður Neymar áfram hérna. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við félagið," sagði Tuchel í dag.

„Við erum sterkara lið með Neymar innanborðs, það leikur enginn vafi á því."

Neymar er einn af bestu leikmönnum í heimi og ljóst að Tuchel ætlar að nota hann ef skiptin ganga ekki upp.

Hann er þó ekki í leikmannahópi PSG í dag enda telur Tuchel að hausinn sé ekki í lagi. Líklegt er að Neymar muni ekki koma við sögu fyrr en eftir að sumarglugginn lokar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner