17.08.26 - 11:12
Elvar Geir Magnússon
Albanskir dómarar á heimavelli hamingjunnar

Enea Jorgji með gula spjaldið á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enea Jorgji með gula spjaldið á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albanski dómarinn Enea Jorgji verður með flautuna á fimmtudaginn þegar Víkingur leikur fyrri leik sinn gegn Borac Banja Luka, meisturum Bosníu og Hersegóvínu, í umspili Sambandsdeildarinnar.
Leikurinn fer fram á Víkingsvelli.
Jorgji hefur tvisvar dæmt hjá Breiðabliki í Evrópuleikjum en hann dæmdi 3-1 sigur Kópavogsliðsins gegn Shamrock Rovers í Sambandsdeildinni síðasta vetur.
Leikurinn fer fram á Víkingsvelli.
Jorgji hefur tvisvar dæmt hjá Breiðabliki í Evrópuleikjum en hann dæmdi 3-1 sigur Kópavogsliðsins gegn Shamrock Rovers í Sambandsdeildinni síðasta vetur.
Albanskt teymi mun sjá um dómgæsluna á vellinum á fimmtudag en VAR dómarinn verður reyndur hollenskur dómari; Jeroen Manschot.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
