Fotbolti.net
17.08.26 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

„City mun verða í vandræðum með að fylla skarðið“

Rodri í leik með Spáni á HM.

Rodri í leik með Spáni á HM.

Canon

Mynd: EPA

Barcelona hefur samið við Manchester City um að kaupa miðjumanninn Rodri fyrir um 65 milljónir punda. Rodri vann Ballon d'Or gullboltann 2024 og var valinn besti leikmaður HM þar sem Spánn stóð uppi sem sigurvegari í sumar.
Man City samþykkti þriðja tilboðið frá Barca
TENGT EFNI

Man City samþykkti þriðja tilboðið frá Barca

„Rodri mun skilja eftir sig stórt skarð og það sýndi sig í frammistöðu miðsvæðis Manchester City í 3-0 tapinu gegn Arsenal í gær," segir Alex Howell, fréttamaður BBC.

„City mun verða í vandræðum með að fylla skarðið. Miðjan var svo opin og Arsenal hafði yfirhöndina svo auðveldlega. Arsenal er með frábæra miðju en Matteo Kovacic er ekki í sama gæðaflokki og Rodri og það sýndi sig í gær."

„Það mun taka aðeins meiri tíma fyrir Elliot Anderson að aðlagast og ná upp hraða og snerpu eftir HM. Við höfum séð að City hefur áhuga á Enzo Fernandez hjá Chelsea en Rodri er heimsmeistari og gullboltahafi svo það er mjög erfitt að leysa hann af."

Manchester City er að reyna að kaupa marokkóska landsliðsmanninn Ayyoub Bouaddi frá Lille en hann er 18 ára gamall. Táningurinn var frábær á HM en hann er varnartengiliður líkt og Rodri.
City vill fá Bouaddi.

City vill fá Bouaddi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.