Fotbolti.net
17.08.26 - 09:37
Elvar Geir Magnússon

Grikkinn á allra vörum eftir frammistöðuna fyrir Arsenal

Christos Tzolis í leiknum gegn City.

Christos Tzolis í leiknum gegn City.

Canon

Mynd: EPA

Gríski kantmaðurinn Christos Tzolis hefur verið einn besti leikmaður Arsenal á undirbúningstímabilinu og hann átti tvær stoðsendingar þegar Arsenal sigraði Manchester City 3-0 í leiknum um Samfélagsskjöldinn.

Tzolis varð fyrsti leikmaðurinn til að eiga tvær stoðsendingar í þessum árlega leik síðan David Beckham gerði það 1996.

„Hann er þekktur fyrir hæfileika sína til að taka góð föst leikatriði og í liði þar sem hornspyrnur og aukaspyrnur eru lykilatriði sýndi Tzolis að hann verður lykilmaður ásamt Declan Rice, Martin Ödegaard og Bukayo Saka," segir Alex Howell, fréttamaður BBC.

Tzolis, sem er 24 ára, lagði líka upp gegn Real Betis og Borussia Dortmund ásamt því að skora gegn Girona. Hann gekk í raðir Arsenal eftir sitt besta tímabil á ferlinum, þar sem hann skoraði 17 mörk og átti 23 stoðsendingar fyrir Club Brugge í Belgíu.

„Hann kemur mjög vel inn í liðið og smellpassar. Hann er mjög klár strákur og býr yfir svo mikilli yfirvegun þegar hann er kominn í góðar stöðu," segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal.

Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur fylgst með vegferð Tzolis og eru þeir miklir vinir. Ísak var í viðtali nýlega um þennan áhugaverða leikmann.
Herbergisfélaginn sem er kominn til Arsenal tveimur árum síðar
TENGT EFNI

Herbergisfélaginn sem er kominn til Arsenal tveimur árum síðar

Grikkinn á allra vörum eftir frammistöðuna fyrir Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.